|
Hvað er skemmtilegra en að fara með alla fjölskylduna á sumarhátið hjá vinnunni. Öll fjölskyldan getur verið saman og séð hvað vinnan hans pabba/ mömmu er skemmtileg. Börnin líta vinnustað foreldranna allt öðrum augum eftir svona dag, finnst hún bæði meira spennandi og hafa meiri skilning á því þegar mikið er að gera hjá foreldrunum í vinnunni.
Dagurinn byrjar á að því að allir koma saman við vinnustaðinn, þar sem að glaðningur bíður yngstu kynslóðarinnar. Svo er haldið á stað í rútu og sungið og trallað alla leið að Kleifarvatni. Þegar að Kleifarvatni er komið blasir við heill heimur af skemmtilegri afþreyingu fyrir alla fjölskyldumeðlimi.Veiði, kanóar, flugdrekar, leikir á ströndinni, göngu- og hjólaferðir, hestar. Síðan er grillað með tilheyrandi kvöldvökustemmingu. Um er að ræða fjölbreytta skemmtun sem sameinar alla aldurshópa í ærslafullum fjölskyldudegi. |
![]() ![]() ![]() |
info att HL.is eða hringdu í síma 588 9 588




