|
Þessi frábæra dagsferð heitir í höfuðið á Þór.
Þór sem einnig er kallaður Ása-Þór eða Öku-Þór (hann heitir á þýsku Donner og Þórr á norrænu) er þrumuguð í norrænni goðafræði. Hann er sterkastur allra ása og býr í höll sem heitir Bilskirnir í ríki sínu sem kallast Þrúðvangar. Hann er sonur Óðins og Jarðar, verndari mannanna og Miðgarðs. Tákn hans er hamarinn Mjölnir. Þór er mest dýrkaður allra Ása að fornu og nýju. |
Fyrir utan býður rútan með feyki sprækum bílstjóra sem mun keyra okkur í Fljótshlíðina.
Komið að Hellishólum þar sem tekið er vel á móti okkur Þar verður skipt um föt því nú ætlum við að rafta.

Kiting og Blokart mikil skemmtun og mikið fjör, eithvað nýtt sem að fáir hafa prófað en allir geta gert og haft gaman af.
Næsti viðkomustaður er öllu rólegri en ekki síðri Seljalandsfoss einn af fallegustu fossum landsins. Verður gert stutt stans þar sem að fólki gefst færi á að ganga bak við fossinn.
Að endingu verður farið að Fjöruborðinu á Stokkseyri þar sem að framreiddur verður humar eins og hann gerist bestur.
Þreyttir enn sælir starfsmenn halda heim á leið í höfuðborgina þar sem þeir allar hörðustu munu halda áfram en við hin förum heim að sofa.
info att HL.is eða hringdu í síma 588 9 588

